miðvikudagur, maí 18, 2005

London beibí yeah.....
Nú er ég bara rétt komin úr ædislegri ferd frá London.
Thar sem thetta var fjórda skiptid sem ég kem til Lundúna og hef aldrei séd thad sem borgin er mest thekkt fyrir var tekid túristan á thetta á føstudagsmorgun. Èg og stóra góra løgdum í hann og var stefnan tekin á høllina, framhjá húsi Tony Blairs, thar næst Big Ben og parlamentid og af søkum mikillar visku og thrjósku systur minnar var endad í London eye mér til eylífrar lukku thar sem ég var næstum thví búin ad gefa upp alla von í thessum 7 bidrødum í Parísarhjólid. Fengum okkur ad borda á Planet Hollywood og endudum kvøldid med thví ad hitta James og vini hans á rosa grúví bar, svona einhver Vegamótafílingur og ekki er thad verra ad syss thekki nú alveg rétta fólkid og løbbudu Hjørleifsdætur eins og drottningar inn í mjøg mikilvægar manneskju eríuna líka svona pungsveittar eftir daginn....Já thad er ekki ad spyrja ad thví;) Fengum okkur cosmo og mojito og røbbudum vid strákana....Thad má vera ad their eiga peningana en eitthvad thurfti hún Lára Òsk ad taka thá í gegn med tískuna, já og thad var spurgt spjørunum úr og vonandi ad thetta komi til med ad gagnast theim í framtídinni og their hætti ad reyna ad skapa nytt trend med thví t.d. ad hefta tvo stuttermaboli saman....WHY? Já madur spyr sig en einn theirra taladi um thá adgerd eda øllu heldur uppgøtvun sem hann virkilega framkvæmdi í 10 mín..... Thetta var rosa gaman og ædislegt ad tala vid Englendinga sem eru med even svartari húmor en vid Ìslendingar og taka thví vel thegar madur er hreinskilin og talar beint út.
Laugardagurinn var tekinn snemma og farid á tvo stadi í St. Albans (Hverfid sem ad Sigurbjørg og Òli eiga heima í) til ad pikka upp jakkaføtin hans Òla í hreinsun. Mín skellir sér í gelludressid, uppháu tigersokkana, stígvélin og pilsid.....svona líka fín og byrjar ad labba í hreinsunina sem er lengra frá. Thegar stelpan var hálfnud til baka med skyrtuna fór nú eitthvad ad síga á seinni helminginn, já annar sokkurinn leitar í áttina frá lærinu ad øklanum....Já tharna gekk mín í laugardagstraffíkinni eins og gæra og ekki thyddi annad en ad taka thetta í sínar hendur og ákveda hvort ad ég ætladi ad verda vandrædaleg eda strákurinn sem gekk á móti. Mín stoppar, tekur af sér sólgleraugun slædar sokkinum upp eftir lærinu og alla leid upp ad nára.....madur slær sko ekki sløku vid , en hvad strákinn vardar thá endadi hann í vandrædiskasti med thví ad labba á kyrrstædann bíl sem var lagt vid vegkantinn.Thegar fyrsta gloría dagsins var búin var skellt sér á Notting Hill markadinn, skodad mikid en ekkert keypt nema versti Subway sem ég hef á ævinni smakkad.....skodad Travel Book shop og dritad hálfu minniskortinu vid thessa litlu búllu. Um kvøldid var svo farid í grillkjúlla hjá Tinnu og Magga í flottu nyju íbúdinni theirra sem liggur rétt vid London bridge. Thar sem mín droppadi nú alveg fína dressinu fyrir markadin svo thad myndi ekki enda med thví ad einhver færi ad bjóda í mig á einu gøtuhorninu thyddi ekki ad thví var droppad fyrir kvøldid líka. Vid systurnar førum á fína badherbergid hennar Tinnu og ætla ég ad tylla mér á klósettid til ad fara í ørlagasokkana, já nei nei.....vid skulum bara orda thad thannig ad ég hafi brotid klósettsetuna í tvennt!!! Já einmitt..... thetta var náttla rosa fyndid fyrir hana Sigurbjørgu sem lá í gólfinu og gat ekki andad, ég var nú alveg í sjokki og freknurnar sáust ekki fyrir reddu í andlitinu......nádi nú samt alveg ad halda kúlinu thegar Tinna sagdi ad hann Maggi hefdi verid búin ad gera sprungu og thetta hafi bara gert útslagid ( tad sem madur gerir ekki til ad láta fólk muna eftir sér;) Snæja gæja lét meira ad segja sjá sig í einn drikk ad mig minnir og eftir smá spjall fóru stelpurnar svo heim svona líka vel hressar eftir frábæra frammistødu Magga á barnum.
Sunnudagurinn var tekinn med ró og nædi. Farid ad versla og keypt sér threnn skópør.....já sumir safna frímerkjum, bókum og eda jafnvel peningum en hvad mig vardar thá safna ég SKÒM...!!! Systurnar skelltu sér svo í parkinn med vatnshelda teppid hans Òla og sleiktu sólina og løgdu sig thad sem eftir var degi. Thegar heim var komid bakadi elsku stóra syss líka thessa ágætis freshetta pizzu fyrir lillu sína og svo var bara byrjad ad gera sig tilbúnar fyrir kvøldid. Sóttum Òla upp á flugvøll, hent honum í partygallann og down town London. Byrjudum á thví ad hitta íslensku fótboltagæjana og konurnar theirra á rosa kúl bar og var startad ad drekka kokteila. Já sumir voru fyndnari en adrir syngjandi Bubba upp í eyrad á einkabílstjóranum eda jafn vel ad segjast vilja taka sex piss all over him.....ferdinni var heitid á Embassy sem er rosa flottur klúbbur, ljósmyndarar all over innganginn og fær hún Olga vinkona Sigurbjargar ordu fyrir ad vera fyndnasta manneskja kvøldsins thegar hún hleypur á Eid Smára thegar hann er tharna í einhverjum eiginhandaráritunarklídum og myndartøkum og bara klessir sér inn á myndina eins og ekkert væri edlilegra og hollywoodbrosid skein eins og hún gerdi ekki annad , já thetta var fyndid en thad sem gekk alveg frá mér var svo thegar hún gerdi thetta vid Sol Campbell sjálfan og hún og Sigurbjørg voru ad segja honum endilega ad kíkja til Ìslands, hann yrdi svo helvíti sérstakur á theim slódum.....fyrir utan thad ad hann er drullufrægur thá væri hann nebbla svartur!!;) Já thetta var skemmtilegt kvøld og sást svipa til systur Beckhams og annarra stráka úr fótboltaheiminum. Dritad var fullt af myndum og komid sér heim í pullur og pasta ala. Britney Sibbs og svo í háttinn.
Mánudagurinn var rólegur kíkt í bæinn, keypt Polaroid myndavél og skellt sér á Kennarann já thank God for KFC....og endad á thví ad fara í bíó.
Èg thakka elskulegu systur minni og kæróinum hennar fyrir mig og alltaf eru thau nú jafn yndisleg........;+;+;+

Fr. CROFTlara osk @ 3:32 PM

sunnudagur, maí 01, 2005

Já hvernig kynntist ég Jonatani.......og hver er hann?? , er spurning sem ég heyri ótt og títt!!
Thannig er thad nú ad ég var med ljósmyndun sem valfag í eina viku. Vid fengum verkefni á hverjum degi og einn daginn áttum vid ad finna eitt par og taka tvær filmur af thví. Thetta par mátti vera systkini, mædgur, kærustupar....o.sv.frv. Vid Bára erum nú svo grand alltaf á thví og vildum ekki vera ad nota sama myndefni og hálfur bekkurinn svo vid ákvádum ad skella okkur nidrí Randers. Vid spottudum stadinn og thar sem fólkid í Randers er nú thekkt fyrir allt annad en ad vera fallegt var thetta kannski ekki alveg eins létt og vid héldum.....En thá loksins fundum vid fríkudustu hárgreidslustofu sem ég hef á ævinni séd, thetta var meira svona eins og antikbúd eda jafn vel leiksvid. Bára finnur thar systur sem hún dritar tveim filmum af og thá var komid ad mér....fyrst ætladi ég ad fara inn á Bodega a.k.a. bæjarpøb og finna rónahjón eda einhvad thví um líkt en svo bara thordi ég ekkert ad standa fyrir framan einhvad svoleidis pakk í klukkutíma med myndavélina eina mér ad vopni....Thá gleymdi ég mér adeins og sé einhverjar geggjadar buxur í flottustu búd bæjarins sem heitir LAB skate store. Já thad var tharna sem Lárann kikknadi í hnjánum.....sér líka thennan gedveikt flotta gæja og svona líka vel dressadann. Mín tekur sig til og spyr hvort ad hann og vinur hans væru ekki til í ad leika brædur fyrir mig....Thad var nú minnsta málid fyrir stelpuna. Vid vorum tharna tvær eldhressar frá Ìslandinu og héldum varla vatni yfir óskøpunum og thad sem meira er thegar ég kíki á filmuna eru thó nokkrar myndir sem sem eru annad hvort bara af Jonatan eda Jonatan bara í fókus.
Èg er nú búin ad hitta hann Tanna minn nokkrum sinnum og vid Bára litum vid í gær og thad var bara yfirheyrt mann um thad hvad madur ætladi ad gera um helgina;)
En nú vitidi sem sagt ad svona kynntumst vid Jonatan. Hún elsku mamma er med meiru búin ad bjóda honum med til Spánar í sumar en ég get nú varla bedid thannig ad thad er aldrei ad vita nema ég tek hann med mér til London eftir tvær vikur;)
Má til med ad segja adeins frá thví ad vid erum búin ad sitja úti í sólinni í allann dag og madur stendur sig ágætlega í thví ad safna brúnku....Soffía var med gesti thau Røgnu og Sindra og fær hann Sindri ordu fyrir ad hafa verid í ljótasta skídagalla sem ég hef á ævinni séd í nánast allann dag og thegar var komid ad thví ad fara í blak fann hann g- streng á grasblettinum og klæddi sig í hann yfir múnderinguna.....Vá thá ældi ég næstum úr hlátri!!! Seinna med tókum ég og Palli svo nærurnar og fløggudum theim, já bara svona í tilefnio af verkalydsdeginum.
Èg vil thakka henni elsku Sissú minni fyrir ad gefa mér ekstra sængurføtin sín fyrir sídasta verkefni. Èg átti sem sagt ad sauma líkklædi og prenta á thad í anda persónunnar sem dó. Èg saumadi fannta fínan kjól med einmitt daudu homieonum sem ég teiknadi sjálf......Sissú: Hún Lára fór í sængurføtunum mínum á djammid;)
En thetta er ordid ágætt og rúmlega thad svo farvel Lára

Fr. CROFTlara osk @ 6:11 PM

fimmtudagur, apríl 28, 2005

Èg á bestu systir í øllum heiminum!!!!
Já hú Sigurbjørg Rós Hjørleifsdóttir er ad fara ad bjóda mér til London. Thessar elskur í Lon og don eru búin ad sitja sveitt vid tølvuna og reyna ad finna flug sem hentar dønsku drottningunni....Já thad er sem sagt komid á hreint 12.-17. maí. Hún er nú alveg yndisleg, bara ætlar ad bjóda lillu siss til sín og er bara í fulle fling ad skipuleggja skodunar- djamm og verslunarferdir;) Koss og knús til Sibbjørgar minnar:):)
Thessa dagana er hann Torben ad kenna mér, súper gódur kennari sem sérhæfir sig í thví sem mér finnst lang skemmtilegast, Textíl og printi!! Èg er búin ad komast ad thví ad ég er best í ad teikna lélega.....sem mér thykir einkar gódur kostur, er búin ad teikna 8 hauskúpur, thá erum vid heldur ekkert ad tala um eitthvad svona typískt dæmi heldur einhvad sem er algjørlega ala Lára, já verk med sál !!!) svo í sumar getid thid keypt svona eitt stykki bol med best í ad teikna lélega hauskúpu á;)
Má til med ad segja frá thví ad ég er med músík sem valfag.....shit man thetta er bara heljarinar líkamsræk út af fyrir sig ÙFFF. Kennarinn er 26 ára ótrúlega hæfileikaríkur trommari med stingandi brún augu og einhver heljarinnar skater í thokkabót.....ekki slæmt!! Erum búin ad vera ad spila Bjørk sídustu tvo tíma og thetta eru bara átøk, thurfti meira ad segja ad skipta um bol thrisvar í dag og ég get bara ekki bedid eftir næsta tíma;)
En thad er svaka party á lau. og themad er ad bjóda sem flestum gestum.....Svo hér med er Øllum theim sem lesa thetta bodid í Party á Brúsagardi nr. 25 næstkomandi lau. og bara endilega látid sjá ykkur...;)
P.S. Sissú vard raudari en glerugun sín thegar ég sagdi henni ad kíkja í augun á kennaranum í fyrsta tímanum og ég held barasta ad hún sé ekki ennthá búin ad fá sig til thess.....Já minn elsku RÙMÌ
PP.S. Bára vard alveg brjálud uppá dekki ádan thegar ég sagdi henni ad hún mætti ekki høssla músíkkennarann, já elsku Bára mín taktu númer....nei thá segir hún bara ad ég geti sko ekki haldid fram hjá Jonatan med músíkkennaranum, ég var sko ekki lengi ad draga mig til baka, bara pínu hugsunarleysi kemur ekki fyrir aftur;)
Lára Out-kast

Fr. CROFTlara osk @ 2:27 PM

þriðjudagur, apríl 26, 2005

Ì sól og sumaryl......
Já hér er búid ad vera sól og sumar sídustu vikur og ekkert yfir thví ad kvarta. Hún Thórdís mín kom til mín daginn sem ég kom heim frá Berlín og var hjá mér fram á thridjudagsmorgun. Thad var ædislegt ad fá hann Dodda minn í heimsókn til Brúsagardar thó svo ad vid høfum nú eitt mest øllum tímanum í Århus í sól og bjór bara ánægdar med lífid. À føs fórum vid down town Randers og tjúttudum adeins á Olgu frænku....vard nú ad syna stelpunni næturlífid í heimabæ mínum....Já rrrróóóó;) Thar sem Thórdís er ekki snilli í ad sofa fram eftir thó svo ad sumir væru sko alveg til í thad thá var vaknad kl níu, nidur í morgunmat og farid ad stríla sig upp fyrir Århus. Okkur var bodid í matarbod til Ditte vinkonu Thórdísar um kvøldid sem var alveg hreint út sagt ædislegt, thriggja rétta dinner og fínheitinn uppmálud. Eftir matinn var svo tekin strætó nidrí bæ..... jájá STRÆTÒ madur er ordinn svo danskur, sitjandi í bussinum sem var trodfullur af uppstríludur djammlidi, thad køllum vid sko stemmara. Sunnudagurinn var tekin meira med ró, út á borda á uppáhalds Kínastadinn minn og í bíó á Adams Æbler sem er ógó gód dønsk mynd, Bára kom med og eins miklar steikur og vid erum thá fannst okkur myndin fráb. en á vinstri hlid heyrdi ég nú dágódar hrotur eftir 15 mín eda svo;) Mánudagurinn var tekin í sólinni í Århus hittum Ditte og Matthildi og endudum svo í kaffi hjá Matthildi til kl 10 um kvøldid.
Helgin sem var ad lída var sko ekki af verri endanum..... einhver helgidagur á føs svo vid fengum langa helgi. Thetta byrjadi allt á fimmt. eftir skóla, strákarnir komnir í bjórinn og íslendingarnir ekki lengi ad taka undir thad;) Èg og Bára fórum á tónleika um kvøldid á Von Hatten ad hlusta á Claus Hempler, Vá ekkert smá gódur danski Damien Rice og vid fengum bara tár í krókana!!) En thá var ekkert annad ad gera víst vid vorumm komnar nidrí bæ en ad halda adeins áfram ad tjútta. Thræddum alla bari Randersbæjar og Èg sver ad vid hittum Leonce ala Randers í trylltum dans og Bára var ekki lengi ad pikka í hana og smella einni af med theim støllum saman. Èg hélt ég yrdi ekki eldri thegar ég sé svo Pharrell Williams ala Randers.....VÀ thad er nú ekki ad kvarta yfir thessu edallidi hérna í Dan, jájá vid smelltum nú af med okkur bádum og koss á kinn fyrir hann elsku Williams, er ennthá ad jafna mig eftir thetta...Ùffff
Føstudagurinn var ekki af verri endanum en thá fórum ég, Sissú ,Thórdís, Soffía og Eva nidrí bæ og tjúttudum af okkur rassgatid.....Thad sem toppadi kvøldid var írski pøbbinn med teknó vidbjódar tónlistinni. Sissú, Soffía og Eva gerdu sér lítid fyrir og tóku hnakkapakka scooter transdansinn og thad sem meira er ad ég tók videoskot sem er nú thegar ofarlega á lista yfir videoskot ársins, thær eiga thad fyllilega skilid trúid mér. Kvøldid endadi ad sjálfsøgdu med thví ad vid sátum inni á uppáhalds Kebabstadnum okkar allar 5 med jumbo pizzaslice med ekstra dressing.
Laugardagurinn átti ad verda Gala thema Ìslendinganna.....má til med ad segja frá thví ad ég og Sissú átum yfir okkur og um átta leitid ætludum vid adeins ad leggja okkur og melta.....Já viti menn, hann Phi kemur inn til okkar um 00:30 leitid, hva ætludud tid ekki ad djamma....nei nei héldum bara áfram ad sofa og vøknudumm snemma fórum til Århus í Badhús ad dekra vid okkur, bíó og út ad borda.
Thetta er nú ansk nógu mikid í bili og skora ég á Báru ad gera betur;) Kv. Lára dóttir Hjølla

Fr. CROFTlara osk @ 7:21 AM

miðvikudagur, apríl 20, 2005

VIVA BERLIN.......
Já their sem ekki vita hversu mikid ég elska Thyskaland......thá gerdi ég mér lítid fyrir um daginn og skellti mér til Berlínar!!!
Vid løgdum í hann á føstudagsmorgni og keyrdum í eina 8 tíma til ad komast í land ennthá ódyrara áfengis, freaky fólks og endalaust mikid af kokteilbara. Thad má nú med sanni segja ad ég sé komin med adra og betri skodun af thessu landi thar sem thessi ferd var snilldin ein og voru thad margir sem áttu thátt í thví ad láta hana enda thannig.
Thad byrjadi audvita med djammi um leid og ef ekki fyrr en bussinn lent á hostel Pegasus, já já thad var nebbla bar í bílnum (lét thad nú samt alveg liggja á milli hluta). Allir skelltu sér í sturtu, í glansgallann og út....Òhætt er ad segja ad thad hafi verid tekin ein salsasveifla á Havana Club eda allavega hálf thar sem thetta var risastór klúbbur med einungis thraulvønu dansfólki og thetta var sko ekkert hristu rassinn thví hér kemur bassinn....já nei nei og stódum vid tharna íslensku dívurnar dansandi vid hvor adra svona líka freestyle salsa fønk eitthvad....Og fyrir utan thad ad vid vorum eins og fífl á dansgólfinu thá var thessi klúbbur inní íbúdarhverfi og thad voru menn í vinnu vid ad sussa á fólkid í rødinni og ekki er ad spyrja ad thví ad íslendingarnir létu heyra í sér....Fuck that leuten slafen!!!
Sumir djømmudu lengur en adrir....og fóru bara ekkert ad sofa....Jájá Bára var bara búin ad vera í svona líka gúddí fílingi med Spánverjunum fram eftir morgni og mætti inn í herbergi um kl.8....já og seightseeingid um Berlínarborg byrjadi tidlig kl.9!!!
Ferdinni var heitid á flóamarkad og keyptu Lára Bára og Soffía allt thad hallærislegasta sem til var....thetta byrjadi allt med thví ad vid fengum okkur allar sólglegaugu med ósnidi....nei nei svo fór ad hitna í kolonum og var thetta komid upp í strídshúfu, póníhest, appelsínugulann varaliit og sídast en ekki síst eld raudann bordsíma sem Soffía var med í tøskunni í thrjá daga og vid áreitandi fólk á gøtunum , réttandi theim tólid: Yes it`s the Icelandic president on line five....ad sjálfsøgdu med Thule auglysinga hreimnum;) Vid Soffía vorum alveg ad digga thennann ótrúlega tøff graffiti listagard thar sem Bára var alveg ad missa thad tekur gestabókina og skrifar ad thetta sé ekkert nema helvítis hrodbjódur..... kv.Lára og Bára.
Thad er nú ekki frásøgu færandi thegar Ìslendingarnir 6 tóku sig svo til fyrir óperuna. Galadress og Cosmopolitan myndataka á rauda dreglinum og ekki adeins á myndavélarnar okkar....Thjódverjarnir voru nú líka farnir ad drita voru alveg vissir um ad vid værum stjørnur from Reykjavík Iceland!!!
Alveg var hægt ad missa sig í thessum freaky búdum í Berlín, já vidbjódslega flottar second hand búdir á hverju horni og mega their eiga thad doítsararnir ad their búa til bestu kokteila sem held ég bara finnast í Evrópu.
Vid fórum á Òlympíuleikvanginn sem Hitler byggdi 1936 og thad má nú kalla mannvirki...ØØØSSSSSSSS já hann sætti sig sko ekkert vid neitt slor hann helv Dolli!! Fórumm á Hoffmann safnid sem er í íbúd Frau Hoffmann ekkert smá flott ad eiga heima á listasafni eda eiga listasafn heima hjá sér....Láran var nú ekki lengi ad gloríast eitthvad, tillir sér adeinns upp ad Barcelona srólnum hennar Frau Hoffmann og nei nei viti menn ledurbandid fíkur nidrá teppid, já mín labbadi flautandi í burtu med de samme;)
Ferdin endadi med thví ad seinasta kvøldid fórum vid á Blindraveitingastad....Já einmitt!!! Blindir thjónar leiddu okkur inná stadinn í halaróu thar sem var kolnidamirkur....BLACK thú sást ekki neitt!!! Bordudum thriggja rétta máltíd og thegar thjónniinn okkar hún Utah setti diskana á bordid thurftum vid ad smella fingrum, kalla eda snerta hana til ad thetta endadi ekki allt saman á gólfinu og ef vid ætludum á klóid thurftu vid fylgd.....Thetta var eitt thad sérstakasta sem ég hef lent í, var farin ad klóra mér ótharflega mikid og thad voru nú einhverjir farnir ad taka upp á ótrúlegustu hlutum líkt og flassa og káfa á kennaranum.....
En daginn sem ég kom heim kom elsku Thórdís til mín og allt um thad í næstu færslu.....
Kv. Laddi Thjódverji

Fr. CROFTlara osk @ 5:45 PM

mánudagur, apríl 04, 2005

Back in the game......

Jæja nú er rússneska brúdkaupinu lokid.....enginn smá anskotans tími sem útlendingar taka í svona vidburdi;)
Èg mætti sem sagt aftur til Dan í fyrradag og vedrid var nú ekki af verri endanum!! Já vid erum ad tala um thad ad ég og Sissú komum til Køben um hádegisbilid á lau og thá var farid straight down town....Ekkert smá mikid af fólki, klætt í alls konar búninga og fínerí í tilefni afmælisdags H.C. Andersen. Vid erum alveg ad tala um 20 stiga hita og af søkum thess fengum vid okkur Pina Colada og sátum úti í vedurblídunni og spókudum okkur ásamt hálfri Dan. Thad tekur alveg 4 tíma ad taka lest til Brúsagardar svo vid mættum eiturferskar um 10 leitid og thá voru krakkarnir í svaka studi uppá dekki og thad thyddi ekkert annad en bara ad vera lidt ligeglad og skella sér med theim í bæinn.....Já mín var soldid threytt eftir ferdalagid en tók nú samt nokkur dansspor og samlokuknús med Báru og Soffíu inná Tante Olga!) Jájá Danirnir eru ekkert alltof mikid ad skilja hvad er eiginlega ad thessum íslensku píum.....enda segjumst vid alltaf vera frá póllandi eda einhverju álíka vidbjódislandi....KLIKKADAR!!!
En sunnuddagurinn var vægast sagt draumur í dós....Sátum útá verønd allann daginn í steikjandi hita, fórum á línuskauta og spiludum fótbolta. Madur er byrjadur ad safna brúnku, thó svo ég hef nú aldrei verid thekkt fyrir ad nenna ad liggja í sólbadi....en er samt búin ad kaupa mér ógó góda línuskauta og vid erum búnar ad stofna línuskautaklúbbinn Kidda. Planid er víst ad fara alltaf fyrir skóla á morgnanna, Já gódann daginn....en madur er afsakadur ef madur er thunnur eda illa stemmdur ad einhverju leiti.....ekki heldur thekkt fyrir ad geta vaknad á morgnana svo ég verd víst ad mestu leiti afsøkud svo snemma dags;)
En ég get ekki sagt annad en ad lífid er yndislegt thessa dagana og ég er ad fara til Berlínar eftir 5 daga....

Fr. CROFTlara osk @ 11:35 AM

miðvikudagur, desember 08, 2004

Rússneskt brúdkaup/karokee hátíd

À laugardaginn var thá skellti ég mér í rússneskt brúdkaup hérna á vistinni......Blái gangur var sem sagt med party og eins og ádur sagdi og lenti madur líka í thessari thrusu veislu!! Já thetta var svona soldid spes, allir fengu hlutverk t.d. var Lars kennari 27 ára ofbeldishneigdur playboyaddáandi sem var yfir sig ástfangin af 13 ára frænku sinni, Justin var einhver throskaheftur prestur sem var smámæltur í thokkabót(Vá ég hélt ég ætladi aldrei ad ná honum úr karakter thegar ég var ad ræda vid hann....thid getid ymindad ykkur fun-id) Já madur spyr sig hvada lyfjum fólkid hafi verid á sem skapadi karakterana;) En thetta var allt saman vel planad; brúdur, brúdgumi, bordhald, rædur, brúdarkaka, skemmtiatridi, gódur matur, vodka og svo audvita Karokee!!
Thetta var eiginlega rugl skemmtilegt party thad var dansad af sér eyrun og mesta trúnóbylgja aldarinnar sveif yfir.....og ég er ad meina thad!! Thid getid rétt ymindad ykkur hvernig thad er ad búa med øllu thessu fólki og búin ad gera thad í 5 mánudi. Allt í einu hverfur madur einhvert í burtu og getur ekki gert allt thad skemmtilega sem madur er búin ad vera ad gera seinustu mán hér í landi sultu og gulróta!!) En fyrir thá sem hafa séd My best friends Wedding og vita thar ad leidandi hvernig Cameron Diaz syngur....já thá vitidi hvernig ég var, en thad sem betra var ad ég var ekki ein um thad. Vid endudum sem sagt kvøldid á thví ad syngja til klukkan 5, ég, Justin, Mikael vinur Justins, Ane Cat og Vinni. Èg stjórnadi micrafoninum og var yfirrappari og ef thad er einhverntíman sem ég hefdi átt ad vera med videoskotin á hreinu thá var thad tharna.....Trúidi mér thetta var áhugavert!!) En vid bjuggum til frábært team, ég og Justin. Ì stad thess ad vekja hvort annad thá fórum vid einn gódan rúnt um skólann og vøktum Sissú, Åse, Mikael, Phi og Dauda køtt, jájá hoppudum í rúmmunum theirra og héldum ad sjálfsøgdu áfram med ad syngja....Vá nú er eins gott ad madur muni eftir ad læsa hurdinni sinni!!)
En nú eru allir ad vinna ad lokaverkefnunum sínum og thad er svaka gódur stemmari í hópnum. Madur er módel fyrir adra ad svo fær madur thá til ad vera módel fyrir sig. En ég er sem sagt búin med mitt verkefni og fékk mjøg góda dóma fyrir thad. Fór svo í mína fyrstu tískumyndatøku thar sem ég thurfti gjørsamlega ad ráda øllu, hanna føt, finna mín model, farda, greida og vera fyrir bak vid cameruna og stilla øllu upp og skipa fólkinu hvad thad átti ad gera og hvernig ég vildi hafa thetta!!! Vá thetta var svo ólysanlega gaman og ég er eiginlega ennthá í svona pínu sjokki.....
En svo erum vid einnig ad skipuleggja opin dag sem er á laugardaginn, thá stillum vid øllu upp sem vid høfum gert og tísku og fatahønnunin verdur med catwalk. Èg er í graffiti hópnum og er yfir tónlistinni og er búin ad fá nokkra tískuløggudiska frá fashionweek London Paris hjá Mikael fancy pants svo thad verdur rosa flott allt saman!! En nú verd ég ad fara og klára óklárud verkefni og gera súper gala kjól sem ég keypti efni í í gær, OHHH ég verd svo mikil tútta (svona eins og elsku mamma segir) en allt um helgina eftir helgi...;)

Fr. CROFTlara osk @ 9:27 AM




Nafn: Lára Ósk
Aldur: 20 ára
Búseta: Danmörk
Nám: Hönnun
E-mail: lara84@visir.is
Sími: (+45)22456494